| Velkomin í leikskólann |
|
|
|
|
Þegar barnið kemur inn í leikskólann í fyrsta skipti kemur það í nýtt umhverfi. Það þarf að aðlagast nýju umhverfi og kynnast börnum og fullorðnum sem eru á deildinni. Það að læra að treysta starfsfólkinu og læra að skilja við foreldrana er ferli sem reynir mikið á og því er samvinna foreldra og starfsfólks mjög mikilvæg. Þegar foreldrar hafa staðfest vistun eru þeir boðaðir á foreldrafund þar sem upplýsingar eru veittar um starfsemi leikskólans. Einnig eru foreldrar boðaðir í fyrsta viðtal án barnsins við leikskólastjóra og deildarstjóra viðkomandi deildar. Þar eru upplýsingar gefnar um barnið og nánar um starf deildarinnar, foreldrunum er sýndur leikskólinn og þeir kynntir fyrir starfsfólkinu. Einn starfsmaður tekur að sér aðlögunina, en starfsmenn eru tveir ef börnin eru fleiri en eitt. Oftast er miðað við að aðlögun taki u.þ.b. fimm daga, en hvert barn og hver aðlögun er mjög einstaklingsbundin og viljum við frekar miða við ákveðið ferli en ákveðinn dagafjölda, þar sem skrefin eru stigin eftir því sem barnið er tilbúið til. Hraði aðlögunar er þá ákvörðuð út frá þörfum barnsins og í samráði við foreldra. Gæta þarf að fara ekki of geyst til að þreyta ekki barnið. Þó miðað sé við u.þ.b. viku aðlögun eru börnin sjaldan orðin fullkomlega þau sjálf fyrr en eftir ca hálft ár. Oft er reynt að tvö eða fleiri börn aðlagist saman inn á deildina. Þá getur verið stuðningur að hafa annan með sem er í sömu sporum og maður sjálfur og oft myndast góð vináttutengsl.Aðlögun barna í Hálsaborg 1. Samtal leikskólastjóra og foreldra fer fram áður en aðlögun barns hefst. Þá er gengið frá dvalarsamningi og veittar gagnkvæmar upplýsingar sem varða barnið og leikskólann. Leikskólastjóri kynnir foreldra fyrir deildarstjórnanda á deild barnsins svo og öðru starfsfólki. 2. Deildarstjórnandi kynnir fyrir foreldrum skipulag deildarinnar í grófum dráttum, en nánari kynning fer fram á aðlögunartímanum. Deildarstjórnandi kynnir foreldra fyrir þeim strarfsmanni/starfsmönnum sem sér/sjá um aðlögunina. Gengið er frá tímasetningu á fyrstu heimsókn barnsins. 3.Foreldri kemur með barnið í fyrstu heimsókn samkvæmt sameiginlegri ákvörðun foreldra og deildarstjórnanda/starfsmanns sem sér um aðlögun. 4. Starfsmaður sem sér um aðlögun er staðsettur á heimabæjum deildarinnar og tekur þar á móti barninu. Fyrsta heimsókn fer fram á valtíma þar sem nokkur börn af viðkomandi deild geta valið inn á svæðið. Þannig kynnist barnið sinni deild til að byrja með. Ef um hópaðlögun er að ræða eru tveir starfsmenn sem sjá um aðlögunina. Barn sem byrjar á deildum þar sem valið er tekur ekki þátt í því fyrst í stað heldur fær það ráðrúm til að öðlast öryggi og kynnast börnum og starfsfólki. Barnið fær valspjald strax í upphafi en byrjar þátttöku í valinu þegar það er tilbúið til þess. 5. Gert er ráð fyrir að minnsta kosti 5 dögum í aðlögun barns. Alltaf er tekið tillit til aldurs, reynslu og líðan hvers barns og því getur aðlögunin tekið lengri eða skemmri tíma en 5 daga. Í ljósi ofangreinds skiptir starfsfólk Hálsaborgar aðlögunartímanum í 5 skref.
|