Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn minn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Hálsaborg er þriggja deilda leikskóli og þar dvelja sextíu börn samtímis. Hvolpadeild er fyrir börn á aldrinum fjögurra til sex ára, Kisudeild er fyrir þriggja til fjögurra ára gömul börn og Bangsadeild er fyrir eins til þriggja ára gömul börn. Hálsaborg er einn af fimm leikskólum í Seljahverfi og var opnaður 30. desember 1980. Hugmyndafræði Hálsaborgar inniheldur þá sýn að einstaklingurinn sé virkur allt frá fæðingu og tilbúinn að takast á við lífið. Markmiðin taka mið af kenningum fræðimanna sem sjá þroskamöguleika einstaklingsins stjórnast af því umhverfi sem hann lifir í og leggja áherslu á sterka sjálfsmynd öðru fremur. Við viljum skapa samfélag stöðugs náms í Hálsaborg þar sem viðurkennandi andrúmsloft ríkir.

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hálsaborg | Hálsaseli 27 | 109 Reykjavík | s: 5578360 | Póstur | Viðburðir | Fréttir